Spænska A-deildarfélagið Valencia er komið langt með að kaupa Gabriel, miðvörð enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal, á um tíu milljónir punda. Sky Sports greinir frá þessu í dag.
Brasilíumaðurinn kom til Arsenal árið 2015 en hann er fyrir aftan Laurent Koscielny, Shkodran Mustafi og Rob Holding í goggunarröðinni á Emirates-vellinum. Gabriel hefur leikið 64 leiki fyrir Arsenal og skorað í þeim eitt mark.