Spænska A-deildarfélagið Valencia hefur keypt Gabriel, 26 ára ára miðvörð frá enska úrvalsdeildarfélaginu Arsenal á um tíu milljónir punda. Leikmaðurinn skrifar undir fimm ára samning við spænska félagið.
Gabriel færðist aftar í goggunarröðinni hjá Arsenal eftir að Rob Holding og Shkodran Mustafi voru keyptir og lék hann aðeins 19 deildarleiki á síðustu leiktíð. Gabriel lék 64 leiki fyrir Arsenal á tveimur á hálfu ári og vann hann enska bikarinn tvívegis með liðinu.
Ítalska félagið Inter lagði fram lánstilboð í Skhodran Mustafi í dag, en Arsenal hafnaði því. Búist er við að Inter leggi fram annað tilboð í Mustafi á næstunni.
La camiseta que preparamos el miércoles ya tiene dueño... y no le queda nada mal 😀 pic.twitter.com/7cuAV2QJcK
— Valencia CF (@valenciacf) August 18, 2017