Þrír Íslendingar voru á skotskónum með liðum sínum í norsku knattspyrnunni um helgina. Kristján Flóki Finnbogason spilaði sinn fyrsta leik fyrir Start í B-deildinni og það tók hann aðeins rúmar 20 mínútur að komast á blað. Hann skoraði þá jöfnunarmark liðsins í 2:2 jafntefli gegn Tromsdalen á 81. mínútu eftir að hafa komið inn á sem varamaður á 60. mínútu. Hér að neðan má sjá mark Kristjáns.
Debut goal from Kristjan Floki Finnbogason for @ikstart ⚽️👌🇮🇸 #TeamTotalFootball pic.twitter.com/5vJWsC7WWJ
— Total Football (@totalfl) August 21, 2017
Aron Elís Þrándarson skoraði í 3:2 tapi Álasunds gegn Tromsø í A-deildinni. Hann jafnaði þá metin í 2:2 á 54. mínútu en því miður fyrir hann nægði það ekki til sigurs því Tromsø skoraði sigurmark leiksins á 75. míntútu. Mark Arons má sjá hér að neðan.
Boooom @aronthrandar with his 1st goal of the season for @AalesundsFK 🇮🇸⚽️👍 #TeamTotalFootball pic.twitter.com/YOx8xSocd3
— Total Football (@totalfl) August 21, 2017
Björn Bergmann Sigurðarson skoraði sitt tólfta mark í norsku A-deildinni er hann skoraði fyrra mark Molde í 3:2 tapi gegn Stabæk. Mark Björns má sjá hér að neðan.
Boooom for the 12th time this season from @bsigurdarson for @Molde_FK 🇮🇸⚽️👊 #TeamTotalFootball pic.twitter.com/oZtzfUyBso
— Total Football (@totalfl) August 21, 2017