Dortmund í toppsætið

Pierre-Emerick Aubameyang fagnar marki sínu í kvöld.
Pierre-Emerick Aubameyang fagnar marki sínu í kvöld. AFP

Borussia Dortmund endurheimti toppsætið í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld þegar fimmtu umferðinni lauk.

Dortmund gerði góða ferð Hamborg og vann heimamenn, 3:0. Shinji Kagawa, Pierre-Emerick Aubameyang og Christian Pulisic settu mörkin fyrir Dortmund. Liðið hefur 13 stig, stigi meira en meistarar Bayern München.

Hoffenheim er í þriðja sætinu með 11 stig en liðið fagnaði 3:2 útisigri gegn Mainz eftir að hafa lent 2:0 undir. Mark Uth skoraði sigurmarkið á 90. mínútu leiksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert