Sverrir Ingi Ingason náði ekki að vera hetja FC Rostov í dag þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Amkar Perm í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Sverrir Ingi spilaði allan leikinn í hjarta varnarinnar og fékk gullið tækifæri til þess að tryggja Rostov sigurinn. Liðið fékk þá vítaspyrnu tólf mínútum fyrir leikslok, en Sverri brást bogalistin á vítapunktinum og lauk leiknum með markalausu jafntefli.
Rostov er með 19 stig í 11. sætinu af 16 liðum með 19 stig eftir 17 leiki.