Ólafur Ingi Skúlason spilaði síðari hálfleikinn fyrir Karabükspor sem tapaði fyrir Kasimpasa í efstu deild tyrknesku knattspyrnunnar og er liðið í erfiðri botnbaráttu.
Kasimpasa hafði betur 2:0 en leikið var á heimavelli Karabükspor Karabük. Ólafur kom inn á sem varamaður að loknum fyrri hálfleik.
Karabükspor er í 17. sæti af 18 liðum í deildinni með 8 stig eftir 12 leiki. Þrjú neðstu liðin eru raunar öll með 8 stig en það eru Osmanlispor, Karabükspor og Genclerbirligi. Þrjú stig eru í næsta lið fyrir ofan.