Brasilíski knattspyrnumaðurinn Robinho, sem hefur meðal annars leikið með Real Madrid, Manchester City og AC Milan, var í dag fundinn sekur um nauðgun sem átti sér stað á næturklúbbi í Mílanó árið 2013.
Dómstóll í Mílanó dæmdi Robinho, sem er 33 ára gamall, í níu ára fangelsi en hann og fimm aðrir karlar voru dæmdir fyrir að nauðga albanskri konu í janúar 2013. Robinho lék þá með AC Milan.
Robinho leikur með liði Atletico Mineiro í Brasilíu en sóknarmaðurinn á að baki 100 leiki með brasilíska landsliðinu og hefur í þeim skorað 28 mörk.