Rúnar einn af fimm bestu

Rúnar Alex Rúnarsson
Rúnar Alex Rúnarsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Rúnar Alex Rúnarsson landsliðsmarkvörður í knattspyrnu er einn af fimm bestu markvörðum dönsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu það sem af er þessu keppnistímabili, samkvæmt vefnum bold.dk.

Vefurinn gefur lesendum tækifæri til að velja á milli þeirra fimm markvarða sem taldir eru hafa staðið sig best. Hægt er að kjósa hér á milli markvarðanna fimm.

Nordsjælland hefur komið mjög á óvart í vetur en liðið er í þriðja sæti eftir 19 umferðir og Rúnar hefur spilað alla leikina í markinu. Nordsjælland er með yngsta lið deildarinnar en Rúnar er 22 ára gamall sem er nálægt meðalaldri leikmanna liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert