Ólafur Ingi Skúlason og lið hans Karabükspor er úr leik í 32-liða úrslitum tyrknesku bikarkeppninnar í knattspyrnu eftir tap fyrir Istanbulspor, 1:0.
Ólafur Ingi lék allan leikinn fyrir Karabükspor, sem er í neðsta sæti tyrknesku efstu deildarinnar og hefur aðeins náð í átta stig úr 15 leikjum.
Istanbulspor er hins vegar í deildinni fyrir neðan og situr í fimmta sæti í B-deildinni.