Landsliðsfyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði eitt mark í stórsigri Wolfsburg á Köln í 11. umferð efstu deildar þýska boltans í dag þar sem lokatölur urðu 6:0.
Wolfsburg hefur 28 stig á toppi deildarinnar, þremur stigum meira en Bayern München í 2. sætinu. München vann einnig sinn leik í dag, 3:0, gegn Frankfurt.
Sara skoraði einnig í síðasta leik er liðið lagði einmitt Bayern, 3:1. Hún hefur skorað þrjú mörk í deildinni á leiktíðinni.