Afríska knattspyrnusambandið hefur tilnefnt þrjá leikmenn sem koma til greina sem leikmaður ársins í Afríku.
Leikmennirnir þrír eru Egyptinn Mohamed Salah, Liverpool, Senegalinn Sadio Mané, Liverpool og Gabonmaðurinn Pierre-Emerick Aubameyang leikmaður Borussia Dortmund.
Þetta er í fyrsta sinn sem þeir Salah og Mané eru tilefndir en Aubameyang val valinn leikmaður ársins í Afríku árið 2015 og hafnaði í öðru sæti 2014 og 2016.
Kjörinu verður lýst þann 4. janúar.