Viktor Karl Einarsson, leikmaður 21-árs landsliðsins í knattspyrnu og AZ Alkmaar í Hollandi, er kominn til reynslu hjá norska úrvalsdeildarliðinu Tromsø.
Netmiðillinn itromso.no skýrði frá þessu í kvöld. Viktor er tvítugur miðjumaður og hefur verið í röðum AZ frá 2013 þegar hann kom þangað sextán ára gamall frá Breiðabliki. Hann leikur nú sitt annað tímabil með varaliði félagsins, Jong AZ, en liðið vann hollensku C-deildina í fyrra og spilar í B-deildinni í vetur.
Viktor hefur verið fastamaður í 21-árs landsliðinu í yfirstandandi undankeppni EM og skoraði tvö mörk í átta leikjum með liðinu á árinu 2017. Hann á samtals að baki 30 leiki með yngri landsliðum Íslands.