Pique samdi við Barcelona

Gerard Pique.
Gerard Pique. AFP

Spænski landsliðsmaðurinn Gerard Pique er búinn að gera nýjan samning við spænska stórliðið Barcelona.

Miðvörðurinn öflugi hefur skrifað undir samning við Katalóníuliðið sem gildir til ársins 2022. Hann hefur spilað 421 leik með Barcelona og skorað 37 mörk og hefur á ferli sínum með liðinu unnið 25 titla.

Pique er uppalinn hjá Barcelona fór þaðan til Manchester United og var hjá félaginu frá 2004-08. Hann lék um tíma sem lánsmaður með Zaragoza en gerði samning við Barcelona árið 2008 og hefur leikið með því síðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert