Meirihluti stuðningsmanna Real Madrid vill losna við besta knattspyrnumann heims, Cristiano Ronaldo samkvæmt skoðanakönnun spænska dagblaðsins AS.
Portúgalski sóknarmaðurinn er búinn að skora 422 mörk í 418 leikjum fyrir Real síðan hann kom til félagsins frá Manchester United árið 2009. Á þeim tíma hefur félagið unnið 15 stóra titla, m.a Meistaradeild Evrópu þrisvar á síðustu fjórum árum.
Þrátt fyrir það vilja 67% stuðningsmanna félagsins losna við hann. 125.000 manns tóku þátt í skoðanakönnuninni. Ronaldo hefur oft spilað betur en á leiktíðinni þar sem hann hefur aðeins skorað fjögur mörk í 14 leikjum í spænsku deildinni.