Alfreð Finnbogason og liðsfélagar hans í Augsburg urðu að gera sér að góðu að tapa gegn Borussia Mönchengladbach á útivelli, 2:0, í efstu deild Þýskalands í fótbolta í dag. Alfreð spilaði fyrri hálfleikinn, en hann hefur verið að glíma við meiðsli.
Gladbach fór upp í 4. sæti deildarinnar með sigrinum en Augsburg er í 8. sæti, þremur stigum frá Dortmund sem er í Evrópusæti.