Martin Schmidt sagði upp starfi sínu sem þjálfari þýska knattspyrnuliðsins Wolfsburg en hann hafði aðeins verið við stjórnvölinn hjá félaginu í fimm mánuði.
Illa hefur gengið hjá Wolfsburg undir stjórn Scmidt en liðið vann aðeins fimm leiki af 22. Síðasti leikur liðsins undir hans stjórn var gegn meisturunum í Bayern München um nýliðna helgi þar sem Bæjarar tryggðu sér sigurinn með því að skora úr vítaspyrnu undir lok leiksins.
Wolfsburg, sem varð bikarmeistari árið 2015, er í 14. sæti þýsku 1. deildarinnar aðeins einu stigi frá fallsæti.