Glódís Perla Viggósdóttir og samherjar í sænska liðinu Rosengård rótburstuðu Eskilstuna, 9:0, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Glódís lék allan leikinn í vörn Rosengård en hún kom einmitt þangað frá Eskilstuna um mitt síðasta tímabil.
Anja Mittag, sem lengi var í lykilhlutverki í þýska landsliðinu, skoraði fjögur af mörkum Rosengård í dag og danska landsliðskonan Sanne Troelsgaard gerði tvö.
Rosengård hefur þá 7 stig eftir þrjá leiki og er efst í deildinni en Hammarby og Piteå eru með 6 stig eftir tvo leiki hvort.