Sara Björk Gunnarsdóttir er þýskur bikarmeistari í annað skipti eftir 3:2-sigur Wolfsburg á Bayern München í vítakeppni í Köln í gær að viðstöddum 17.692 áhorfendum eins og sagt var frá í gær.
Staðan eftir venjulegan leiktíma var markalaus og því þurfti að framlengja. Ekki tókst að skilja liðin að í framlengingunni og fór leikurinn því alla leið í vítaspyrnukeppni. Sara Björk lék allan leikinn en tók ekki víti fyrir sitt lið.
Það vantaði ekki upp á gleðina og fögnuð hjá Söru og stöllum hennar sem hafa unnið tvöfalt, deild og bikar. Wolfsburg mætir svo Lyon í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á fimmtudaginn kemur. Meðfylgjandi myndir birtust á Facebook-síðum Söru og Wolfsburg.