Lærisveinar Heimis eru óstöðvandi

Brynjar Hlöðversson var fyrirliði HB í sigurleiknum gegn EB Streymur …
Brynjar Hlöðversson var fyrirliði HB í sigurleiknum gegn EB Streymur í gær. Ljósmynd/HB

Það er ekkert lát á sigurgöngu lærisveina Heimis Guðjónssonar í færeyska knattspyrnuliðinu HB.

HB hafði betur gegn EB Streymur í gær 1:0. Þetta var áttundi sigurleikur HB í röð í deildinni og er liðið með þriggja stiga forskot á B36 á toppi deildarinnar eftir 11 umferðir. HB hefur unnið 9 leiki, gert eitt jafntefli og tapað einum en HB tapaði fyrir KÍ í fyrstu umferðinni.

Brynjar Hlöðversson lék allan tímann fyrir HB og bar fyrirliðabandið en hann gekk í raðir Þórshafnarliðsins frá Leikni Reykjavík fyrir tímabilið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert