Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hefur gefið út opinbert lag heimsmeistaramótsins í knattspyrnu en flautað verður til leiks á HM í Rússlandi 14. júní.
Lagið heitir Live It Up og er flutt af Nicky Jam, Will Smith og Era Isterefi.
Opnunarleikur heimsmeistaramótsins verður viðureign gestgjafa Rússa og Sádi-Araba sem fram fer á Luzhniki Stadium í Moskvu 14. júní en 16. júní spilar Ísland sinn fyrsta leik á móti Argentínu á Spartak Stadium í Moskvu.
Í meðfylgjandi myndskeiði má hlusta á lagið.