Björn Bergmann Sigurðsson var í lykilhlutverki er Rostov vann 4:0-stórsigur á Jenisei í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.
Björn Bergmann skoraði fyrstu tvö mörk Rostov, á 31. og 35. mínútu, áður en hann var tekinn af velli á þeirri 77. Þeir Ragnar Sigurðsson og Sverrir Ingi Ingason voru sömuleiðis í byrjunarliði Rostov og léku allan leikinn í vörninni.
Rostov er því aftur komið á sigurbraut eftir tap í síðasta leik en liðið hefur nú unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum tímabilsins og er í 4. sæti með níu stig.