Viking vann 2:1 útisigur á Notodden í B-deild Noregs í fótbolta í dag. Með sigrinum styrkti liðið stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar. Axel Óskar Andrésson lék allan leikinn í vörn Viking og skoraði sigurmarkið undir lokin.
Axel er að láni hjá Viking frá enska B-deildarfélaginu Reading og var hann að leika sinn annan leik fyrir norska liðið. Viking er þremur stigum frá toppliði Aalesund þegar sjö umferðir eru eftir.