Mandzukic ekki með á Old Trafford

Mario Mandzukic.
Mario Mandzukic. AFP

Króatíski framherjinn Mario Mandzukic verður fjarri góðu gamni með Juventus þegar liðið sækir Manchester United heim á Old Trafford í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu á morgun.

Mandzukic meiddist á ökkla á æfingu Juventus í dag fyrir leikinn á morgun, en félagið tilkynnti þetta í dag. Hinn 32 ára gamli Mandzukic hefur spilað 10 leiki fyrir Juventus á leiktíðinni og hefur í þeim skorað fjögur mörk og gefið tvær stoðsendingar.

Eins og greint var frá hér á mbl.is verður Manchester United án Alexis Sánchez í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert