Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, gerði 1:1-jafntefli á alþjóðlegu móti sem haldið er í Kína gegn gestgjöfunum sjálfum.
Heimamenn voru töluvert meira með boltann í upphafi leiks, uppskáru mark úr hornspyrnu eftir 18 mínútna leik og voru verðskuldað yfir í hálfleik. Fyrirkomulagið á mótinu er frjálslegra en í mótsleikjum og notaði Eyjólfur Sverrisson þjálfari sex skiptingar í hléinu.
Einn þeirra sem kom inn á var Felix Örn Friðriksson og var það hann sem jafnaði metin á 60. mínútu með skoti í stöng og inn. Bæði lið fengu færi til að kreista fram sigurmark, Sveinn Aron Guðjohnsen skaut í hliðarnetið úr góðu færi áður en Aron Birkir Stefánsson tók á honum stóra sínum í marki Íslands og varði vel. Að lokum urðu liðin að sættast á jafntefli.
Ísland tapaði gegn Mexíkó, 2:0, í fyrsta leiknum í fyrradag og mætir næst Taílandi á mánudaginn kemur. Mikil stemning var á vellinum í Chongqing en um 18 þúsund áhorfendur voru á pöllunum og þar á meðal Tólfan, stuðningssveit íslenska landsliðsins.
30” - We’ve got a double Viking clap!#fyririsland pic.twitter.com/gHqhjKvrPS
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) November 17, 2018
👇 This is our starting lineup against China.#fyririsland pic.twitter.com/PqCznNO19P
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) November 17, 2018