Mauro Icardi og Paulo Dybala tryggðu Argentínumönnum 2:0 sigur í vináttuleik gegn Mexíkó í nótt.
Icardi skoraði fyrra markið strax á 1. mínútu leiksins og Dybala innsiglaði sigurinn á 87. mínútu. Þetta voru fyrstu mörk þeirra fyrir argentínska landsliðið en Icardi, leikmaður Inter Mílanó, var að spila sinn 8. landsleik en Dybala, leikmaður Juventus, sinn 18. Þetta var annar sigur Argentínumanna gegn Mexíkóum á fimm dögum.
Richarlison, liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar hjá Everton, skoraði eina mark Brasilíu í sigri gegn Kamerún í vináttuleik.
Þá vann Síle öruggan sigur gegn Hondúras þar sem Arturo Vidal skoraði tvö af mörkum Sílemanna og þeir Alexis Sánchez og Nicolas Castillo gerðu sitt markið hvor.