Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, hefur fengið samningi sínum við ítalska A-deildarliðið Frosinone rift, en hann gekk í raðir félagsins í sumar.
Emil, sem er 34 ára gamall, fór til Frosinone í sumar frá Udinese. Liðið er nýliði í ítölsku A-deildinni en er í harðri fallbaráttu. Þjálfari liðsins var rekinn í desember og Emil hefur sjálfur ekkert spilað síðan í október vegna meiðsla á hné.
Frosinone var fjórða ítalska liðið sem Emil spilar fyrir, á eftir Udinese, Verona og Reggina. Hann hefur áður verið á mála hjá Tottenham og Barnsley á Englandi, Lyn í Noregi og Malmö í Svíþjóð, auk FH hér heima. Emil á að baki 67 landsleiki fyrir Íslands hönd.