Knattspyrnumaðurinn Nani hefur skrifað undir þriggja ára samning við bandaríska MLS-liðið Orlando City en það er Sky Sports sem greinir frá þessu. Nani kemur til félagsins á frjálsri sölu en Nani spilaði síðast með Sporting í heimalandi sínu Portúgal.
Nani er uppalinn hjá Sporting en hann gekk til liðs við Manchester United árið 2007 þar sem hann spilaði í átta ár. Hann skoraði 25 mörk í 147 leikjum fyrir félagið en hann er orðinn 32 ára gamall.
Orlando City var stofnað árið 2013 en hóf formlega þátttöku í MLS-deildinni árið 2015. Félaginu hefur aldrei tekist að komast í úrslitakeppni deildarinnar en Orlando City hafnaði í 22. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð.