Virgil van Dijk, leikmaður Liverpool, er spenntur fyrir því að mæta Lionel Messi og Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu. Van Dijk er af mörgum talinn besti miðvörðurinn í boltanum í dag og þá er Lionel Messi er albesti knattspyrnumaður sögunnar. Því eru margir knattspyrnuáhugamenn afar spenntir að sjá þessa tvo leikmenn mætast á vellinum en leikirnir fara fram 1. maí og 7. maí næstkomandi.
Messi hefur verið sjóðandi heitur á þessu tímabili og hefur leikmaðurinn skoraði 45 mörk í öllum keppnum á tímabilinu. „Hvernig ætlum við að stoppa Messi? Ég hreinlega veit það ekki, það kemur í ljós,“ sagði Van Dijk við blaðamenn í gær. „Þetta verða tvær frábærar viðureignir en þetta er aldrei bara ég á móti sóknarmanninn. Þetta snýst um að verjast sem lið, ekki sem einstaklingar.“
„Þetta verður mjög erfitt, það er alveg á hreinu. Fyrir mér er Messi besti knattspyrnumaður heims í dag en við sjáum til. Við ætlum fyrst og fremst að njóta þess að vera komnir í undanúrslit, annað árið í röð," sagði Van Dijk þegar hann var spurður að því hvort það að reyna stoppa Messi yrði hans erfiðasta verkefni til þess á knattspyrnuvellinum.