Þýska knattspyrnuliðið Borussia Dortmund hefur átt viðræður við Juventus um að fá miðjumanninn Emré Can til liðs við sig í janúar.
Þýski landsliðsmaðurinn hefur verið úti í kuldanum hjá Juventus og hefur aðeins verið í byrjunarliðinu í einum leik og var ekki valinn í leikmannahóp liðsins í Meistaradeildinni.
Can, sem er 25 ára gamall, kom til Juventus frá Liverpool í júní á síðasta ári og gerði fjögurra ára samning við Ítalíumeistarana. Hann hefur spilað 33 deildarleiki með Juventus og hefur í þeim skorað 4 mörk.
Can lék með Liverpool frá 2014 til 2018. Hann spilaði 115 leiki með liðinu í ensku úrvalsdeildinni og skoraði í þeim 10 mörk. Hann á baki 24 leiki með þýska landsliðinu.