Valencia og Real Madríd skildu jöfn, 1:1, er liðin mættust í spænsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld. Karim Benzema skoraði jöfnunarmark Real á fimmtu mínútu uppbótartímans.
Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Carlos Soler fyrir Valencia á 78. mínútu. Allt benti til þess að markið yrði sigurmark, en Real neitaði að gefast upp og Karim Benzema jafnaði með síðustu spyrnu leikins.
Real er í öðru sæti með 35 stig, eins og Barcelona sem er í toppsætinu. Valencia er í áttunda sæti með 27 stig.
Næsti leikur Real er á útivelli gegn Barcelona, El Clásico, á miðvikudagskvöld.