Fjögur mörk í Leipzig

Krzysztof Piatek fagnar jöfunarmarki sínu gegn RB Leipzig í dag.
Krzysztof Piatek fagnar jöfunarmarki sínu gegn RB Leipzig í dag. AFP

Krzysztof Piatek reyndist hetja Herthu Berlínar þegar liðið heimsótti RB Leipzig í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Leiknum lauk með 2:2-jafntefli en Piatek jafnaði metin fyrir Herthu Berlín með marki úr vítaspyrnu á 82. mínútu.

Marko Grujic kom Herthu Berlín yfir á 9. mínútu en Lukas Klostermann jafnaði metinn fyrir Leipzig á 24. mínútu. Á 63. mínútu fékk Marcel Halstenberg að líta sitt annað gula spjald í liði Leipzig og þar með rautt en það kom ekki að sök.

Patrik Schick kom Leipzig 2:1-yfir á 68. mínútu en þeim tókst ekki að halda út og Hertha Berlín jafnaði. Leipzig er áfram í þriðja sæti deildarinnar með 55 stig, 2 stigum minna en Borussia Dortmund sem er í öðru sætinu, en Hertha Berlín er í tíunda sætinu með 35 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert