Portúgalinn Cristiano Ronaldo skoraði eitt marka Juventus í þægilegum 3:0 sigri á Dynamo Kiev í Meistaradeild Evrópu og hefur þá skorað 750 mörk í atvinnumennskunni.
Ronaldo hefur leikið fyrir Sporting Lissabon, Manchester United, Real Madríd og nú Juventus fyrir utan portúgalska landsliðið en 102 mörk hefur hann skorað í landsleikjum. Mörkin fyrir Juventus eru nú orðin 75 talsins.
𝟕𝟓𝟎 goals, 𝟕𝟓𝟎 happy moments, 𝟕𝟓𝟎 smiles in the faces of our supporters. Thank you to all the players and coaches that helped me reach this amazing number, thank you to all my loyal opponents that made me work harder and harder everyday. pic.twitter.com/ZuS4GDOzeh
— Cristiano Ronaldo (@Cristiano) December 2, 2020