Hinn 16 ára gamli Orri Steinn Óskarsson var í miklu stuði fyrir U19 ára lið FC Kaupmannahafnar er liðið valtaði yfir Horsens, 9:2, í dönsku U19 ára deildinni í fótbolta.
Orri hefur leikið afar vel á tímabilinu og skorað átta mörk í fimm leikjum. Þá hefur Hákon Arnar Haraldsson einnig spilað vel með FCK og skorað fimm mörk á leiktíðinni.
Hákon kom til danska félagsins frá ÍA og Orri frá Gróttu.
Orri Oskarsson (2004) scored a Hat-trick & Hakon Haraldsson (2003) 2 goals when FCK U19’s won Horsens 9-2 away in the league 🇮🇸⚽️⭐️👌 pic.twitter.com/pQPDQXz4zz
— Magnus Agnar Magnusson (@totalfl) April 10, 2021