Timo Werner, framherji enska knattspyrnuliðsins Chelsea er að yfirgefa félagið og ganga aftur til liðs við þýska liðið RB Leipzig.
Werner var keyptur frá Leipzig til Chelsea sumarið 2020 en stóðst engan vegin væntingar. Hann skoraði einungis 10 mörk í 56 deildarleikjum á þessum tveimur árum.
Nú er talið að hann sé að ganga aftur til liðs við Leipzig en hann raðaði inn mörkum þar árin 2016-2020.