Úkraína vann stórsigur á Armenum

Artem Dovbyk skoraði tvíveigis fyrir Úkraínu í dag.
Artem Dovbyk skoraði tvíveigis fyrir Úkraínu í dag. AFP/Andy Buchanan

Úkraína vann afar sannfærandi 5:0-útisigur á Armeníu í B-deild Þjóðadeildarinnar í knattspyrnu í dag.

Oleksandr Tymchyk kom Úkraínu yfir á 22. mínútu og reyndist það eina mark fyrri hálfleiks. Á 57. mínútu tvöfaldaði Oleksandr Zubkov forystuna og rúmum 10 mínútum síðar skoraði Artem Dovbyk þriðja markið.

Danylo Ignatenko skoraði fjórða markið þegar tæplega 10 mínútur voru til leiksloka og Dovbyk gerði svo annað mark sitt skömmu síðar.

Úkraína er á toppi riðils 1 í B-deildinni með 10 stig. Skotland er í öðru sæti með 9 stig en á þó leik til góða og er því ljóst að það verður mikið undir þegar liðin mætast á þriðjudaginn í lokaumferð riðilsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert