Portúgal verður andstæðingur Íslands í úrslitaleiknum um sæti í lokakeppni heimsmeistaramóts kvenna í knattspyrnu eftir að hafa unnið Belgíu, 2:1, í undanúrslitum umspilsins í portúgalska bænum Vizela í kvöld.
Leikur Portúgals og Íslands fer fram á þriðjudagskvöldið kemur, 11. október, í Pacos de Ferreira í norðurhluta Portúgals klukkan 17 að íslenskum tíma.
Portúgal náði forystunni á 28. mínútu þegar Diana Silva skoraði, 1:0. Tessa Wullaert, fyrirliði Belga, jafnaði metin, 1:1, á 40. mínútu og staðan var þannig í hálfleik.
Á 87. mínútu var dæmd vítaspyrna á Belga en eftir ítarlega skoðun af skjá breytti dómarinn því í aukaspyrnu og sýndi Amber Tysiak rauða spjaldið.
Carole Costa tók aukaspyrnuna en Nicky Evard markvörður Belga varði skot hennar í þverslána og yfir. Upp úr hornspyrnunni sem fylgdi í kjölfarið skoraði Costa með skalla, 2:1.
Belgar voru því manni færri og gerðu þrefalda skiptingu í kjölfarið en náðu ekki að ógna marki Portúgals í uppbótartímanum.
Íslenska liðið dvelur við æfingar í Algarve á suðurströnd Portúgals og fer þaðan til Porto á sunnudaginn. Pacos de Ferreira er í aðeins 30 km fjarlægð frá Porto.