Lyon og Chelsea í undanúrslit

Ashley Lawrence úr Chelsea sækir að Chasity Grant hjá Ajax …
Ashley Lawrence úr Chelsea sækir að Chasity Grant hjá Ajax í kvöld. AFP/Glyn Kirk

Lyon frá Frakklandi og enska liðið Chelsea eru komin áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta.

Chelsea nægði 1:1-jafntefli gegn Ajax frá Hollandi á heimavelli sínum. Chelsea vann fyrri leikin 3:0 og einvígið samanlagt 4:1.

Kólumbíska landsliðskonan Mayra Ramírez kom Chelsea yfir á 33. mínútu en Chastity Grant jafnaði á 65. mínútu og þar við sat.

Lyon vann öruggan 4:1-heimasigur á Benfica í kvöld og 6:2-sigur í einvíginu samanlagt.  

Delphine Cascarino og Kadidiatou Diani gerðu tvö mörk hvor fyrir Lyon, en bæði mörk þeirrar síðarnefndu komu í uppbótartíma. Marie-Yasmine Alidou gerði mark Benfica þegar hún jafnaði í 1:1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert