Daninn Bo Svensson er nýr knattspyrnustjóri karlaliðs Union Berlin sem rétt svo bjargaði sér frá falli í þýsku 1. deildinni í vor.
Union Berlin hafnaði í 15. sæti deildarinnar með 33 stig, jafnmörg og Bochum sem fer í umspil við Düsseldorf um hvort liðið verður í efstu deild Þýskalands í haust.
Svensson hefur áður stýrt Mainz í Þýskalandi en sem leikmaður lék hann hjá Borussia Mönchengladbach og Mainz í Þýskalandi.
Union Berlín átti afleitt tímabil en í fyrra komst liðið í Meistaradeild Evrópu.