Þrjú sett og upphækkun þurfti til að útkljá viðureign Serenu Williams og Heather Watson á Wimbledon-mótinu í tennis í dag.
Fyrirfram var búist við öruggum sigri hinnar bandarísku Williams sem er á toppi heimslistans og leikurinn byrjaði líka vel fyrir hana. Öruggur 6:2 sigur en hin breska Heather svaraði með 4:6 setti strax á eftir.
Oddasettið fór í upphækkun og þar komst Watson í 3:0 en Williams sneri viðureigninni heldur betur við og vann að lokum 7:5 eftir mikla dramatík.