Bandaríska tenniskonan Serena Williams er komin áfram í undanúrslitin á Wimbledon-mótinu í tennis.
Hún vann Hvít-Rússann Victoria Azaneka með 2 settum gegn einu eftir að hafa lent undir, 3:6 í fyrsta settinu. Serena, sem er efst á heimslistanum og ein besta tenniskona allra tíma að mati margra, svaraði þó fyrir sig og vann tvö sett örugglega í röð, 6:2 og 6:3.
Fyrr í dag vann hin spænska Garbine Muguruza Timea Bacsinszky frá Sviss og Maria Sharapova frá Rússlandi vann Coco Vandeweghe frá Bandaríkjunum. Ein viðureign er eftir í 8-manna úrslitum kvenna en hin bandaríska Madison Keys mætir Agniezska Radwanska frá Póllandi.