Eygló Ósk Gústafsdóttir hafnaði í 23. sæti í 50 metra baksundi á heimsmeistaramótinu í sundi í Kazan í Rússlandi í morgun.
Eygló Ósk synti á tímanum 28,75 sekúndum, en Íslandsmet hennar í greininni er 28,61 sekúndur. Hún verður í eldlínunni á föstudaginn, en þá keppir hún í 200 metra baksundi.