FH-ingurinn efnilegi Stefán Velemir bætti eigið met í kúluvarpi 20 – 22 ára pilta innanhúss á Coca-Cola móti FH-inga í Kaplakrika í gærkvöld.
Stefán kastaði kúlunni 17,61 metra og þeytti henni fjórum sinnum yfir sautján metrana en fyrra met hans var 17,40 metrar og það jafnaði hann fyrir hálfum mánuði á sama stað.
Stefán hefur kastað 18 metra slétta utanhúss og er í áttunda sæti yfir bestu kúluvarpara Íslands frá upphafi samkvæmt afrekaskrá fullorðinna, bæði innanhúss og utanhúss.