Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir hafnaði í 9. sæti í undanrásum 100 metra bringusundi á heimsbikarmóti í Tókýó í Japan í dag.
Hrafnhildur synti á tímanum 1:06,88 mínútum og varð í níunda sæti en átta fyrstu komust í úrslit. Íslandsmet hennar í greininni er 1:06,12 mínútur.
Hrafnhildur mun einnig keppa í 50 og 200 metra bringusundi á mótinu.