Freyja Mist keppir í dag

Freyja Mist Ólafsdóttir keppir í -75kg flokki í dag.
Freyja Mist Ólafsdóttir keppir í -75kg flokki í dag. Lyftingasamband Íslands

Freyja Mist Ólafsdóttir úr Lyftingafélagi Reykjavíkur keppir á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum klukkan 18:00 í dag en mótið fer fram í Eilat í Ísrael. Hún er núverandi Norðurlandameistari í -75kg flokki.

Freyja hefur keppt í bæði +75kg flokki á þessu ári sem og -75kg flokki en hún setti Norðurlandamet hjá keppendum 20 ára og yngri þegar hún snara 83kg á Norðurlandamóti fullorðinna í Finnlandi í október.

Hún setti síðan Norðurlandamet unglinga er hún keppti í +75kg flokki en þar snaraði hún 89kg. Hún keppir í -75kg flokki kvenna í dag en hún hefur leik klukkan 18:00.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert