KA og Stjarnan áttust við um helgina í Mizuno-deild kvenna í blaki, en seinni viðureignin fór fram í KA-heimilinu síðdegis í gær.
Stjörnukonur byrjuðu af krafti en KA var fljótt að taka við sér. Úr varð hörkuspennandi fyrsta hrina þar sem Stjarnan hafði að lokum betur, 25:23.
KA náði sér ekki á strik eftir þetta og Stjarnan vann næstu tvær hrinur sannfærandi, 25:14 og 25:15, og leikinn því samanlagt 3:0. Rosilyn Cummings var stigahæst hjá Stjörnunni en hjá KA var Hulda Elma Eysteinsdóttir stigahæst.
Stjarnan kom því fram hefndum frá því á föstudagskvöld, þegar KA hafði betur í spennuleik sem fór í oddahrinu, 3:2.