Þormóður Árni Jónsson, Norðurlandameistari í júdó, mun fara fyrir íslenska hópnum á setningarhátíðinni í San Marínó sem hefst nú klukkan 19:00 að íslenskum tíma.
Þormóður keppir fyrir Júdófélag Reykjavíkur og er í hópi reyndustu keppenda í íslenska hópnum á þessum leikum. Hann er margfaldur Íslandsmeistari og þrefaldur ólympíufari.
Þormóður var einnig fánaberi Íslands á Ólympíuleikunum í Ríó í fyrra og þekkir því hlutverkið.