Helga Kolbrún efst í undankeppninni

Helga Kolbrún fer vel af stað á Smáþjóðaleikunum.
Helga Kolbrún fer vel af stað á Smáþjóðaleikunum. Ljósmynd/Facebook síða Helgu

Undankeppni kvenna í bogfimi með trissuboga á Smáþjóðaleikunum lauk rétt í þessu. Helga Kolbrún Magnúsdóttir er efst í kvennaflokki, en Astird Daxbock og Margrét Einarsdóttir verma sjötta og sjöunda sæti.

Í karlaflokki undankeppninnar með sveigboga, er Sigurjón Atli Sigurðsson í sjötta sæti, efstur Íslendinganna, en þar á eftir koma Guðmundur Örn Guðjónsson og Haraldur Gústafsson, í tólfta og fimmtánda sæti. 

Síðar í dag er undankeppni karla með trissuboga og kvenna með sveigboga en úrslitakeppnin í þessum greinum hefst á fimmtudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert