Óborganleg afmæliskveðja til Gunnars – mynd

Þjálfari bardagakappans Gunnars Nelson, John Kavanagh, eða Coach Kavanagh, eins og hann er betur þekktur, sendi Gunnari sprenghlægilega afmæliskveðju á Twitter en Gunnar varð 29 ára gamall í gær.

Myndina má sjá hér að neðan en óhætt er að fullyrða að hún er talsvert úr karakter bardagakappans rólega sem jafnar sig þessa dagana eftir bardaga sinn við Santiago Ponzinibbio sem rotaði Gunnar á dögunum.

Gunnar kærði þó úrslit bardagans og er það mál enn í vinnslu en í myndskeiðum af bardaganum mátti greinilega sjá að Argentínumaðurinn potaði nokkrum sinnum í augu Gunnars.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert