Norðmenn og Þjóðverjar hafa verið sigursælastir allra þjóða á Vetrarólympíuleikunum í Pyeongchang í Suður-Kóreu en ellefti keppnisdagurinn á leikunum var í dag.
Norðmenn og Þjóðverjar hafa unnið til 11 gullverðlauna og Kanadamenn koma næstir með 8 gullverðlaun.
Norðmenn hafa unnið til flestra verðlauna á leikunum en þeir hafa fengið samtals 29 verðlaunapeninga. Þjóðverjar koma næstir með 23 og Kanadamenn 19.