Thelma fimmta og Guðfinnur sjötti

Thelma Björg að lokinni keppni í 100 metra bringusundi SB5 …
Thelma Björg að lokinni keppni í 100 metra bringusundi SB5 í Dublin í gærkvöldi. Ljósmynd/ÍFSport.is

Guðfinnur Karlsson, Firði, hafnaði í sjötta sæti í úrslitum í 400 metra skriðsundi S11 (Alblindir) í gær á Evrópumóti fatlaðra sem nú stendur yfir í Dublin á Írlandi. Guðfinnur synti á tímanum 5:45.62 mín. sem er rúmum þremur sekúndum lakara en tíminn sem hann synti á í undanrásum. Úkraínumaðurinn Viktor Smyrnov tryggði sér Evrópumeistaratitilinn en hann synti á tímanum 5:01.63 mín.

Þá hafnaði Thelma Björg Björnsdóttir, ÍFR, í fimmta sæti í hundrað metra bringusundi SB5 (hreyfihamlaðir) þegar hún synti á tímanum 1:56.61 mín. Íslandsmet hennar í greininni er 1:52.79 mín. og hún var því talsvert frá sínu besta en hún bætti sig þó frá undanrásunum þar sem hún synti á 1:56.77 mín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert